Færsluflokkur: Menning og listir
Les leikritið á daginn, eftir það handboltaleikur og bjór á Amor, kvöldið enda ég svo einn á kaffi Karólínu, sörfa netið og drekk bjór. Helvíti gaman.
jæja, það er ekki svo langt í lok apríl.
***
Komst svo að því að Dirty Three séu að velja á All Tomorrows Parties. Geðveikt line-up og það eru til miðar, en ég er að sýna síðustu sýningar og kemst því ekki.
En það verður ábyggilega eitthvað gott á Sjallanum þá helgi.
meira seinna...miklu meira
Menning og listir | 26.1.2007 | 17:20 (breytt kl. 17:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Á Akureyri er ekki gert ráð fyrir gangandi fólki þ.e. a.s. það er ekki gert ráð fyrir að fólk gangi neitt. Öllum snjó er skafað upp á gangstéttarnar þannig að ef svo ólíklega vill til að fólk fari ekki ferða sinna á bíl verður það samt að vera á götunni, sem er flughál, vegna þess að á Akureyri er ekki sett salt á göturnar heldur sandur og af skornum skammti. Reyndar stoppa allir bílar strax fyrir þeim sem vilja yfir götuna komast (gefandi að þeir séu á nölum auðvitað)
Bjarni bekkjarbróður minn er t.d. að fara að leika í stuttmynd hjá ungum Akureyringum sem að ætla að freista þess að ganga í spor Magna okkar, bara á kvikmyndasviðinu. Þegar drengirnir hringdu og mæltu sér mót við Bjarna, tóku þeir ekki annað í mál en að sækja hann og svo hann þyrfti ekki að labba þessa 30 metra eða svo sem að skilja að hótel Hörpu og kaffihúsið Bláu Könnuna.
***
Harpan er annars fín. Ég var svo heppin að fá frekar stórt herbergi, 108, sem að snýr út á pollinn. Tveir stórir gluggar og ágætis gólfpláss. Það besta er tvímælalaust samt það að ég get horft á sjónvarpið bæði meðan ég er að kúka og líka þegar ég er í sturtu. Snilld.
Annars á eftir að koma reynsla á hvernig sambýlið virkar. Sumir hanga einir inni á herbergjunum sínum, aðrir sameinast í sjónvarpsglápi fram í Melrose (stofu/eldhúsi) á náttfötunum og skiptast á að splæsa Orwille light. Aðrir kíkja á barinn.
Mér finnst létt popp vont.
Menning og listir | 26.1.2007 | 17:15 (breytt kl. 17:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)