Frægasta fólkið í Reykjavík

Um síðustu helgi var ég á barnum með bróður mínum og í einum endanum glitti í kunnulegt andlit.  Ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar það rann upp fyrir mér að það tilheyrði glæpamanninum Aroni Pálma.  Ég fríkaði út, hringdi í Hannes og deildi við Gunna hvor okkar ætti að festa drenginn á filmu (síma).  Úr varð að hvorugur okkar þorði nálægt tröllinu og Droni náði (einhvern veginn) að komast óséður framhjá Hannesi út í nóttina.

Annars stakk Dunda upp á því að Sparisjóðurinn ætti að ráða Aron Pálma í vinnu sem einhverskonar maskot: Sparon Álmi.  (það eru allir komnir með leið á óheilbrigðu sambandi Króna og Krónu) 

Í gærkvöldi sá ég svo Steed Lord í rigningunni Á Grettisgötu, afferma steisjonbíl af marglitum hljóðfærum.  "á ég að taka sinþinn" spurði tattúveraði mjói gæinn og hélt á hvítu hljómborði.  Þessi feiti með bleiku sólgleraugun og derhúfuna sagði honum að taka allt.  Svala skýldi sér bakvið litríka hettupeysuna og sagði ekki neitt.   

ég skil ekki Steed Lord.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband