Sviđakjammar og SMS

Helgin búin.  ţađ er gott.  vinna á morgun og eksjúlí eitthvađ ađ gera.  Magnađ ađ helgarnar séu leiđinlegri en virkir dagar.  Kannski einmitt út af ţví, virkir dagar eru virkir en helgarnar óvirkar. (ok, Hallgrímur Helga hefđi hugsanlega gert eittvađ meira úr ţessu en..)  Á föstudagskvöldiđ héldum viđ ţorrablót.  keyptum fullt af ónýtum mat og buđum öllum sem ađ viđ ţekktum.  Jón Páll kenndi mér hvernig best er ađ skera sviđahausa og dönsk grćnmetisćta horfđi á međ hryllingi.  Allir enduđu dansandi á Kaffi Akureyri og mađur var ekki kominn heim fyrr en um fjögur! (einmitt hér lokar allt fjögur) Annars var mjög aman, hef ekki orđiđ svona fullur síđan á Benedorm 97, gubbađi og allt.

Laugardeginum eyddi ég einn á kaffi Amor ađ sörfa netiđ, sem ađ ég er by the way ađ verđa búinn međ.  Pétur Ben var međ tónleika á Grćna Hattinum sem ađ viđ fórum ađ sjálfsögđu á.  Pétur er einlćgur mađur.  og ég meina í alvörunni einlćgur, ekki svona Mugison-ó-ég-kann-ekki-lagiđ-sem-ađ-ég-samdi-einlćgur (pétur ruglađist reyndar nokkrum sinnum og gerđi krúttlegan brandara úr öllu saman) heldur trúđi mađur honum, hann var í alvöru einlćgur. Held ég.  Eftir tónleikana fóru allir heim nema ég,  ég fór einn á barinn, sat út í horni međ bjórinn minn og sendi sms út um allan heim.  Ţađ var ekki gaman.  sérstaklega afţví ađ allir sem ađ ég sendi skeyti virtust vera ađ djamma, skipti ţá engu máli hvort ađ viđkomandi var í Reykjavík, Helsinki eđa Berlín. Ţađ eina sem ađ skipti máli ađ enginn ţeirra var á Akureyri.

Ég kem samt til Reykjavíkur á mánudaginn.  Neyđarhróp úr röđum Dominos.  Stoppa stutt en ég stoppa.    

p.s. Janice Dickenson er versta kona í heimi.  Hún stendur fyrir allt sem ađ er ađ hinum vestrćna heimi.  Ég myndi hata hana ef ađ ég vćri ekki betri en hún. 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband